SKILMÁLAR

SKILMÁLAR

Að skipta og skila vöru
Veittur er 14 daga skilaréttur við kaup á vöru sem er ekki sérhönnuð. Ef kaupandi vill ekki skipta vörunni fyrir aðra vöru verður gefin út inneignarnóta eftir að varan er móttekin. Inneignarnótan er í formi kóða sem er notaður hér á síðunni þegar verslað er og gildir í eitt ár frá útgáfudegi. Flutnings- og póstburðargjöld eru ekki endurgreidd. Sérhönnuðum vörum eins og stjörnumerkjaplakötunum verður ekki hægt að skipta né skila nema um galla sé að ræða.

Gölluð vara
Sé vara gölluð eða villa í plakati er viðskiptavinum boðin ný vara í staðinn og greiðum við allan sendingakostnað sem um ræðir. Eða endurgreiðum ef þess er krafist. Að öðru leiti vísast til laga um húsgöngu og fjarsölusamninga nr.46/2000 og laga um neytendakaup.

Verð á vöru og sendingakostnaður
Öll verð í vefverslun eru með inniföldum 24% vsk. en sendingakostnaður bætist síðan við áður en greiðsla fer fram. Við sendum allar vörur með Dropp á afhendingarstaði Dropp eða útkeyrslu á þeirra vegum. Sendingakostnaður er 590 kr. í Dropp box og 990 kr. í útkeyrslu á höfuðborgarsvæðinu. Sendingar utan höfuðborgarsvæðisins verða sendar með Flytjanda á afhendingarstaði þeirra á landsbyggðinni eða keyrt heim. Við bjóðum upp á fría afhendingu ef verslað er yfir 12.000 kr.,-

Afhending vöru
Allar pantanir eru afgreiddar 2-8 virka daga eftir pöntun. Hver vara er sérhönnuð og prentuð við pöntun. Af öllum pöntunum dreift af Dropp gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Dropp um afhendingu vörunnar. Skrifað í stjörnurnar ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á týndum sendingum eða tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Ef að vara týnist í pósti eða verður fyrir tjóni frá því að að hún er send frá Skrifað í stjörnurnar til viðkomandi er tjónið á ábyrgð kaupanda. Frí heimsending er í boði á höfuðborgasvæðinu ef verslað er fyrir meir en 12.000 kr. í heildina nema annað komi fram í lýsingu á vöru.

Trúnaður (Öryggisskilmálar)
Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem hann gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila.

Privacy policy 
All personal information will be strictly confidential and will not be given or sold to a third party.

Lög og varnarþing
Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavikur.

Governing law / Jurisdiction 
These Terms and Conditions are in accordance with Icelandic law.

Skrifað í stjörnurnar
Suðurmýri 36 
170 Seltjarnarnes
+354 781-0000 
skrifadistjornurnar@gmail.com

Skrifað í stjörnurnar áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust. Áskilinn er réttur til að staðfesta pantanir símleiðis.

Eigandi:
SURA productions ehf.
kt.620922-0210
Þuríður Kr Kristleifsdóttir

Skrifað í stjörnurnar er fjölskyldufyrirtæki rekið af grafíska hönnuðinum Þuru Stínu og klipparanum Arnari Jónmunds. Hér getur þú sérpantað stjörnuplakat fyrir þína fjölskyldu. Hvert plakat er sérhannað út frá ykkar stjörnumerkjum og því einstakt. Settu inn stjörnumerki þinnar fjölskyldu og fáðu sent ykkar eigið stjörnuplakat. Þú velur hversu mörg stjörnumerki þú vilt hafa á plakatinu, lit og stærð og setur síðan inn stjörnumerkin ykkar í athugasemd.

Öll plaköt eru prentuð á góðan 180 gr. pappír í prentsmiðju af fagaðilum.